Hlutverk starfsfólks

Skólastjóri

Skólastjóri er forstöðumaður skólans og ber ábyrgð á að skólinn starfi samkvæmt lögum og reglugerðum. Hann veitir faglega forystu, skipuleggur skólastarfið í samráði við starfsfólk, ræður kennara og annað starfsfólk. Skólastjóri kemur fram fyrir hönd skólans út á við, vinnur með skólayfirvöldum, menntamálaráðuneyti o.fl. Skólastjóri vinnur með skólaráði og foreldrafélagi, ber ábyrgð á útkomu skólanámskrár og stuðlar að því að markmiðum skólans sé framfylgt. Skólastjóri undirbýr kennarafundi. Hann fylgist með störfum þeirra sem í skólanum vinna og tekur þátt í að leysa þau mál sem upp koma varðandi nemendur og starfsfólk.

Aðstoðarskólastjóri

Aðstoðarskólastjóri hefur sömu starfslýsingu og skólastjóri og er staðgengill hans og nánasti samstarfsmaður. Skólastjóri felur aðstoðarskólastjóra verkefni.

Deildarstjóri

Deildarstjóri ber ábyrgð á daglegu starfi Sólgarðaskóla og öðrum verkefnum sem skólastjóri felur honum.

Umsjónarkennari

Umsjónarkennarar fylgjast með námi og þroska nemenda sinna, leiðbeina þeim og hafa reglulegt samband við forráðamenn þeirra. Umsjónarkennari fylgist einnig með námi nemenda sinna hjá öðrum kennurum. Umsjónarkennari skal með skráningu upplýsinga og ýmsum matsaðferðum hafa yfirsýn yfir gengi og líðan nemenda sinna, nám, hegðun og leik. Hann sér um skráningu á námsmati. Umsjónarkennari sér um að tilkynningar berist frá skólanum til nemenda og heimila þeirra. Umsjónarkennarar leitast við að skapa góðan bekkjaranda, notalegt námsumhverfi og setja umgengnisreglur með nemendum. Þeir hafa frumkvæði að samstarfi við heimilin og styðja foreldra til starfa með bekknum.

Kennarar

Kennarar gegna lykilhlutverki í skólastarfinu. Á þeim hvílir sú skylda að miðla þekkingu til nemenda og leitast við að uppfylla þau markmið sem skólinn hefur sett. Þeir annast kennslu samkvæmt stundaskrá og fylgjast með því að nemendur haldi reglur þær er skólinn setur. Kennarar vinna að undirbúningi kennslustunda, yfirferð verkefna, auk margs konar skýrslugerða og fleiri starfa sem skólastjóri felur þeim.

Forfallakennari

Forfallist kennari er reynt að leysa viðveru nemenda með því að annar kennari hlaupi í skarðið og/eða bekkjardeildum er blandað saman. Skyndileg forföll raska oft áætlunum um kennslu. Reynt er að láta ekki tíma nemenda í skólanum breytast þrátt fyrir leyfi/veikindi kennara.

Stuðningskennari

Stuðningur við nemendur sem standa höllum fæti í námi er skipulagður í samráði við ráðgjafa Skólaskrifstofunnar. Þangað er leitað eftir greiningu á vanda nemenda og ábendingum um leiðir til úrlausnar á námsvandamálum þeirra. Kennarar skólanna sinna stuðningskennslu við skólana eftir þörfum.

Stuðningsfulltrúi

Einn stuðningsfulltrúi er í hálfu starfi og starfar við deild skólans á Hofsósi og annar í hlutastarfi á Hólum. Þeir gegna mikilvægu hlutverki í námi barna sem eiga í námserfiðleikum. Stuðningsfulltrúinn léttir undir með kennaranum á ýmsan hátt svo hann geti betur sinnt nemendum sínum en einnig er stuðningsfulltrúi oft við hlið þeirra nemenda sem þurfa mikla aðstoð. Stuðningsfulltrúi við skólann er Solveig Pétursdóttir á Hofsósi og Ásdís Garðarsdóttir á Hólum.

Umsjónamaður skólamannvirkja

Húsverðir hafa umsjón og eftirlit með húsnæði skólans. Þeir hafa eftirlit með ástandi húsa, húsbúnaði og lóða. Þeir lagfæra það sem skemmist eða slitnar. Þeir sjá um að hiti, lýsing og loftræsting sé í lagi ásamt því að sinna öðrum verkefnum sem til falla. Eiríkur Frímann Arnarson er húsvörður á Hofsósi og Sólgörðum en Árni Gísli Brynleifsson á Hólum.

Skólaliði

Verkefni skólaliða er m.a. að  taka á móti nemendum á morgnanna og veita þeim aðhald  og stuðning. Skólaliði ræstir skólann, sér um gangavörslu, frímínútnagæslu og önnur tilfallandi verkefni. Ásdís Garðarsdóttir er skólaliði á Hólum, Carolina Linder og Júlía Linda Sverrisdóttir á Hofsósi og Hrafnhildur Hreinsdóttir á Sólgörðum.