Réttindi starfsfólks eru:
- Að komið sé fram við það af virðingu og sanngirni af nemendum, foreldrum og samstarfsfólki.
- Að fá að vinna verk sín án óþarfa truflana.
- Að reynt sé að skapa því öruggt og hvetjandi starfsumhverfi.
Skyldur starfsfólks eru:
- Að reyna að skapa öruggt og áhugavekjandi umhverfi sem hvetur til náms.
- Að koma fram við nemendur, foreldra þeirra og samstarfsfólk af virðingu og vinsemd.
- Að vera samkvæmt sjálfu sér.
- Að hafa samband við foreldra eftir þörfum.
- Að styrkja sjálfsmynd nemenda með markvissu hrósi og viðurkenningu.