Vorferðir yngri nemenda á Hofsósi: Meðan á skólaferðalagi eldri nemenda stendur hafa yngri nemendur breytt út af venjubundnu skólastarfi með svokölluðum vinnudögum eða þemadögum. Þeim fylgja oft stutt ferðalög sem tengjast þemaverkefnum hverju sinni.
Íþróttaferðir: Undanfarin ár hafa nemendur skólans tekið þátt í grunnskólamóti í frjálsum íþróttum sem haldið hefur verið af UMSS annars vegar í september og hins vegar í janúar eða febrúar.
Menningarferðir: Miðað er við að öllum nemendum skólans bjóðist að fara í eina leikhús- eða bíóferð á vetri.