Sólgarðaskóli

Saga skólans:

Á Sólgörðum hefur verið skólahald í tæp fimmtíu ár. Fyrst var kennt í “gamla skólanum”, en það hús var upphaflega byggt sem sumardvalarstaður fyrir siglfirsk börn á tímum seinni heimsstyrjaldarinnar. Núverandi skólahús var tekið í notkun 1985. Kennsluaðstæður eru mjög góðar, húsið er bjart og rúmgott og nýtur skólasamfélagið góðs af hitaveitu sem gerir kleift að halda opinni 16 metra langri sundlaug allt árið. Aðalkennslostofur eru tvær, fyrir yngri og eldri deild. Leikskóli er starfræktur í suðurhluta hússins. Tónlistarkennari kemur einu sinni í viku og stunda allir nemendur skólans tónlistarnám. Fullkomið mötuneyti er við skólann og fá nemendur morgunmat, heitan hádegismat og létta síðdegishressingu sem matráður skólans sér um að undirbúa. Náin samvinna er við Grunnskólann á Hofsósi, en þangað sækja nemendur danstíma og smíðakennslu auk þess að taka þátt í félagslífi. Í upphafi haustannar fer fram tveggja vikna sundnámskeið þar sem nemendur Grunnskóla Hofsóss ásamt nemendum Sólgarða æfa sund undir leiðsögn sundþjálfara. Ekki er formleg aðstaða til íþróttakennslu við skólann.

Skipurit:

Sólgarðaskóli er útibú frá Grunnskóla Hofsóss. Skólastjóri er Jóhann Bjarnason, aðstoðarskólastjóri er Bjarki Már Árnason og deildarstjóri er Guðrún Hanna Halldórsdóttir. Nemendum eru í yngri deild (2.-3. bekkur) sem er í umsjón Arnþrúðar Heimisdóttur.   Hrafnhildur Hreinsdóttir er matráður og skólaliði. Um skólaakstur sér María Númadóttir.

Nemendur: 

Nemendur verða fimm talsins skólaárið 2013-2014. Samkennsluformið er notað mikið skiljanlega, þar sem aldursbilið er svo breitt sem raun ber vitni. Stuðst er við einstaklingsmiðað nám, þar sem hver og einn fær að njóta sín bæði í leik og námi. Mikið er til af námsgögnum til að koma til móts við hvern nemenda. Á mánudögum fá nemendur afhentar vikuáætlanir, þar sem námi komandi viku er gert skil, en að sjálfsögðu mega nemendur læra meira kjósi þeir svo.

Námsráðgjöf og sérkennsla: 

Sökum smæðar samfélagsins eru boðleiðir mjög stuttar, það er hvorki starfandi foreldrafélag né foreldraráð við skólann, en engu að síður er góð samvinna milli skóla og heimila.

Skólinn á þó nokkuð af bókum sem krakkarnir hafa aðgang að. Auk þess er gamla hreppsbókasafnið varðveitt í skólahúsinu.