Fréttir

Nýtt og uppfært skóladagatal

Nýtt og uppfært skóladagatal er komið á heimasíðu skólans með breytingum sem samþykktar voru í fræðslunefnd á síðasta fundi. Sjá má nýja skóladagatalið undir flipa á forsíðu sem heitir skóladagatal.
Lesa meira

Skólahald fellur niður í dag 22.mars

Allt skólahald fellur niður í dag 22.mars vegna slæmra aksturskilyrða og veðurs.
Lesa meira

AUKASÝNING - Stella í orlofi

Vegna fjölda áskorana setur unglingastig Grunnskólans austan Vatna AFTUR á svið: Stellu í orlofi þann 20.mars kl.20:00 Endilega nælið ykkur í miða á nemo@gav.is eða í síma 845-2811 Hlökkum til að sjá ykkur í leikhúsi.
Lesa meira

Vorið kom og vorið fór

Nú fer veður kólnandi eftir vorblíðu síðustu daga. Undanfarna daga hefur verið mikil veðurblíða. Nemendur hafa notið útiverunnar í leik og starfi. Nemandi í fjölmiðlavali, Karlotta Klara, skrapp út og tók myndir af krökkunum í frístund. Á myndunum má sjá Anton Fannar, Elmar Árna, Kristján, Jón Greip og Sölku Marín í fótbolta. Thor Kofi sýndi frábæra takta í körfubolta en honum finnst mjög gaman í þeirri íþrótt. Það er gaman frá því að segja að veðurspáin hefur verið alveg frábær þótt veturinn minni á sig einsog dagatalið segir til um.
Lesa meira

Árshátíð unglingastigs föstudagskvöldið 15.mars kl. 18:00

Árshátíð unglingastigs föstudagskvöldið 15.mars kl. 18:00. Í ár verður Stella í orlofi sett á svið. Frétt unnin af Dagmar Helgu í fjölmiðlavali. (Smellið á fréttina).
Lesa meira

Árshátíð GaV á Hólum - Bakkabræður

Árshátíð Grunnskólans austan Vatna - Hólum Verður haldin fimmtudaginn 14.mars kl. 16:30. Að lokinni sýningu mun foreldrafélagið bjóða upp á kaffihlaðborð. Allir velkomnir.
Lesa meira

Brunavarnir Skagafjarðar heimsóttu GaV á Hofsósi

Á hverju ári fær 3.bekkur fræðslu um eldvarnir og í kjölfarið geta þeir tekið þátt í eldvarnargetraun frá Landsambandi slökkviliðsmanna. Nú á dögunum var dregið í getrauninni og fengum við skemmtilega heimsókn frá Brunavörnum Skagafjarðar. Thor Kofi hafði svarað öllum spurningum réttum í getrauninni og var dreginn út. Thor Kofi nemandi í 3.bekk tók á móti viðurkenningarskjali frá Brunavörnum Skagafjarðar í dag (21.febrúar). Innilega til hamingju með viðurkenninguna Thor Kofi.
Lesa meira

Öskudagur

Í Grunnskólanum austan Vatna er alltaf mikið fjör á öskudaginn. (Smellið á fréttina).
Lesa meira

Selt til góðs!

Nemendur á unglingastigi hafa haft umhverfisvæna skiptislá í stofunni hjá sér í að verða tvö skólaár. Nemendur koma með föt á slána og þar fær fatnaðurinn framhaldslíf í nýjum höndum og hjá öðrum eigendum. Upp kom sú hugmynd að útfæra þetta enn frekar og halda flóamarkað til styrktar nemendafélagi skólans. Smellið á fréttina til að lesa meira :)
Lesa meira

Skólahald fellur niður í dag þriðjudaginn 6.febrúar

Vegna slæmrar aksturskilyrða og veðurs verður allt skólahald fellt niður í dag þriðjudaginn 6.febrúar í Grunnskólanum austan Vatna.
Lesa meira