Ólympíuhlaup ÍSÍ

Norræna skólahlaupið hefur farið fram í grunnskólum landsins óslitið frá árinu 1984 og lengstan hluta þess tíma verið í umsjón ÍSÍ. Á síðustu árum hefur Ísland verið eina þátttökuþjóðin á Norðurlöndunum og nafn hlaupsins því ekki endurspeglað verkefnið. ÍSÍ hefur því ákveðið að breyta nafni hlaupsins og varð Ólympíuhlaup ÍSÍ ofan á. Þátttaka íslenskra grunnskólanemenda hefur verið mjög góð og almenn í gegnum árin en hefur náð nýjum hæðum á undanförnum árum. Með Ólympíuhlaupi ÍSÍ er eins og áður leitast við að hvetja nemendur skólanna til þess að hreyfa sig reglulega og stuðla þannig að betri heilsu og vellíðan.

Nemendur geta nú sem áður valið á milli þriggja vegalengda í hlaupinu, þ.e. 2,5 km, 5 km eða 10 km. Að hlaupinu loknu fær hver þátttakandi og hver skóli viðurkenningarskjal þar sem greint er frá árangri. Það skal tekið fram að hér er fyrst og fremst lögð áhersla á holla hreyfingu og að allir taki þátt.

Hlaupið fer fram þriðjudaginn 24. september á Hólum og Hofsósi.