Hólar: 453 6600
Hofsós: 453 7344
Sólgarđar: 467 1040
Réttindi og skyldur foreldra
Réttindi foreldra eru:
Skyldur foreldra eru:
Fréttabréf
Stjórnendur gefa reglulega út fréttabréf skólans á hverjum stađ. Fréttabréfin eru send heim međ nemendum auk ţess sem ţau eru birt á heimasíđunni og send međ netpósti í gegnum upplýsingakerfiđ Mentor. Auk ţess gefur skólastjóri út almennt fréttabréf sem dreift er í hús á skólasvćđinu öđru hverju yfir veturinn. Í upphafi hverrar viku gefur skólastjóri út starfsmannafréttabréf sem sent er í tölvupósti út á starfsfólk skólans og ađra hagsmunaađila hans.
Námsefniskynning
Skólinn býđur foreldrum til kynningafunda á haustönn. Dagskrá fundanna og skipulag ţeirra er í höndum umsjónarkennara. Á kynningarfundum er skólastarfiđ, námsefni, yfirferđ, námsmat og fleira kynnt. Ţá er fariđ yfir samskipti heimila og skóla, skólareglur o.ţ.h. Skólinn vill brýna fyrir foreldrum ađ mćta á kynningarfundina .
Foreldraviđtöl
Foreldraviđtöl eru haldin tvisvar á vetri. Ţá hitta foreldrar umsjónarkennara barna sinna í skólanum. Ţar er fariđ yfir stöđu nemandans og ef ţurfa ţykir lagđar línur fyrir nýjar áherslur í samvinnu milli kennara og heimilisins um ađ námiđ takist sem best.
Mentorvefurinn
Mentorvefurinn (mentor.is) er hluti af upplýsingamiđlun skólans. Foreldrar (og/eđa nemendur) geta skráđ sig inn á vefinn međ lykilorđi og fá ţá ađgang ađ sérstakri heimasíđu fjölskyldunnar. Upplýsingar um öll börn viđkomandi heimilis birtast á síđunni. Á Mentor geta foreldrar séđ dagskrána hjá öllum sínum börnum, ástundun, heimavinnu, tilkynningar frá skólanum sem og einstökum kennurum, sameiginlegt skóladagatal, bekkjarvef međ nöfnum og símanúmerum bekkjarfélaga og fleira. Til ţess ađ foreldrar geti nýtt sér Mentor ţurfa ţeir ađ fá lykilorđ frá skólanum.
Skólaráđ
Viđ grunnskóla skal starfa skólaráđ sem er samráđsvettvangur skólastjóra og skólasamfélags um skólahald. Skólaráđ tekur ţátt í stefnumörkun fyrir skólann og mótun sérkenna hans. Skólaráđ fjallar um skólanámskrá skólans, árlega starfsáćtlun, rekstraráćtlun og ađrar áćtlanir um skólastarfiđ. Skólaráđ skal fá til umsagnar áćtlanir um fyrirhugađar meiri háttar breytingar á skólahaldi og starfsemi skóla áđur en endanleg ákvörđun um ţćr er tekin. Skólaráđ fylgist almennt međ öryggi, ađbúnađi og almennri velferđ nemenda. Skólanefnd, sbr. 6. gr., getur međ samţykki sveitarstjórnar faliđ skólaráđum einstakra skóla ákveđin verkefni ţessu til viđbótar.
Samkvćmt lögum skal skólaráđ skal skipađ níu einstaklingum til tveggja ára í senn, tveimur fulltrúum kennara ásamt einum fulltrúa annars starfsfólks í viđkomandi skóla, tveimur fulltrúum nemenda og tveimur fulltrúum foreldra, auk skólastjóra sem stýrir starfi skólaráđs og ber ábyrgđ á stofnun ţess. Skólaráđ velur ađ auki einn fulltrúa grenndarsamfélags til ađ sitja í ráđinu eđa viđbótarfulltrúa úr hópi foreldra. Vegna ađstćđna Grunnskólans austan Vatna ţá verđur skólaráđiđ skipađ ţremur kennurum frá hverjum skóla, ţremur foreldrum sem eru auk ţess fulltrúar grenndarsamfélagsins og formanns og varaformanns nemendaráđsins. Auk ţess skal skólastjóri bođa til sameiginlegs fundar skólaráđs og stjórnar nemendafélags ađ lágmarki einu sinni á ári.
Ráđherra setur reglugerđ um starfsemi skólaráđa í samráđi viđ samtök sveitarfélaga, kennara og foreldra.
Foreldrafélagiđ
Foreldrafélög koma ađ ákveđnum ţáttum í skólastarfinu, einkum ţeim sem snúa ađ félagslífi nemenda. Má ţar nefna ađstođ viđ veitingasölu á árshátíđ, skólaslitum og viđ ađra stćrri viđburđi í fjáröflun. Í stjórn foreldrafélaganna eru ţrír foreldrar á hverjum stađ.
Hofsós:
ˇ Elínborg Hilmarsdóttir mph@simnet.is
ˇ Gunnar Steingrímsson stora-holt@simnet.is
ˇ Ingrid Gertrud Carolina Linder linder_tullan@hotmail.com
Hólar:
ˇ Claudia Lobindzus claudialobindzus@isl.is
ˇ Víkingur Gunnarsson vikingur@holar.is
ˇ Ţórđur Ingi Bjarnason torduringi@isl.is
Sólgarđar:
Ţađ er ekki starfandi foreldrafélag á Sólgörđum