Mötuneyti er starfrækt í báðum skólunum. Matráðar fara eftir leiðbeiningum og stöðlum Lýðheilsustöðvar við framreiðslu og val á fæði fyrir nemendur.
Hofsós:
Mötuneyti skólans er starfrækt í félagsheimilinu. Þangað fara allir nemendur í morgunmat og á mánudögum – fimmtudögum er hádegismatur þar fyrir kennara og nemendur sem ekki fara heim í hádeginu. Sendur er út reikningur fyrir fæðiskostnaði mánaðarlega. Guðbjörg Særún Björnsdóttir sér um mötuneytið, henni til aðstoðar er Gréta Dröfn Jónsdóttir.
Hólar:
Mötuneytið er starfrækt í húsnæði skólans. Alla daga er boðið upp á morgunmat og hádegismat, nema á föstudögum þá lýkur skóla um hádegi og hádegismatur ekki í boði. Anna Þór Jónsdóttir er matráður á Hólum.
Reglur í matsal
Við ætlum:
o ef áminning dugar ekki þá afhenda nemendur símann sinn starfsmanni skólans og fá hann aftur í lok skóladags