Baráttudagur gegn einelti
Þriðjudaginn 8. október er baráttudagur gegn einelti. Við hvetjum alla til þess að mæta í einhverju grænu
til þess að minna á að öll viljum við vera græni karlinn í eineltishringnum.
Græni karlinn í eineltishringnum er verndari, er á móti einelti og kemur þolendum til hjálpar.