1.-2. bekkur hefur verið að læra um nánasta umhverfi skólans í haust.

Nemendur í 1. og 2. bekk hafa verið að læra um nánasta umhverfi skólans í haust. Útikennslutímar hafa verið nýttir vel í að skoða sig um og reyna að sjá eins langt og vítt og við hægt er. Við fórum upp á hólinn austan við Hofsós og horfðum á fjallahringinn og fjörðinn og sáum Drangey og Þórðarhöfðann. Við erum líka búin að fara niður í fjöru og sjá ósinn þar sem Hofsá rennur út í sjó. Mánudaginn 14. september, í tilefni af degi íslenskrar náttúru, fórum við með skólabíl út á Höfðaströnd og gengum upp með Gljúfurá sem rennur í gili milli bæjanna Vatns og Höfða. Þar er vegslóði sem liggur upp á fjallið á bak við Gusthnjúk. Þaðan er auðvelt að sjá legu Höfðavatnsins og af hverju Þórðarhöfðinn er ekki eyja en hann lítur líka allt öðruvísi út frá þessu sjónarhorni. Málmey var skammt undan en faldi sig í þoku að mestu.

Þegar komið var aftur í skólann teiknuðu krakkarnir myndir og sömdu eftirfarandi sögu um ferðina. (Sjá mynd). 

Við fórum í fjallgöngu við Gusthnjúk. Skólahópurinn úr leikskólanum kom með okkur. Við fórum að borða ávexti. Við gengum upp með Gljúfurá og sáum flottan foss og mikið af bláberjum. Það voru líka krækiber. Við tíndum ber og borðuðum þau. Lyngið var bæði rautt og grænt. Við fylltum brúsana okkar af köldu vatni í ánni. Við lékum kindur í réttinni og fundum bolta sem við lékum okkur með.