Þriðjudaginn 2. september héldu nemendur á unglingastigi í sína árlegu ævintýraferð. Ferðin er ein stór þrautseigjuæfing en er einnig hugsuð sem hópefli og hristir hópinn rækilega saman fyrir komandi vetur. Ævintýraferðin skiptist annars vegar í gönguferð og hins vegar hjólaferð.
Að þessu sinni var gengið yfir Siglufjarðarskarð á þriðjudeginum, förinni var heitið á Siglufjörð þar sem nemendur fengu nesti úr Aðalbakaríi á Siglufirði og gengið var yfir skarðið. Gönguferðin gekk vel og sýndu bæði nemendur og starfsfólk mikinn dugnað. Þokubakki lá yfir Siglufirði og skarðinu og því urðu mikil fagnaðarlæti þegar létti til og sólin fór að skína þegar komið var yfir skarðið. Nemendur kíktu eftir berjum og var álit hópsins að berjasprettan væri með besta móti. Að göngu lokinni beið vöffluveisla eftir nemendum í félagsheimili Fljótamanna, Ketilási. Síðan var haldið í sund á Sólgörðum og kvöldinu lokað með hamborgaraveislu, leikjum og bíókvöldi á Ketilási þar sem var gist.
Miðvikudagurinn rann upp, algjört logn var í Fljótunum og flugan tók því sannarlega fagnandi. Nemendum leist nú ekki á blikuna að hjóla í slíku flugnageri en sem betur fer voru allar flugur á bak og burt þegar komið var í Reykjarhól þar sem hjólaferðin átti að hefjast.
Rúmir 20 kílómetrar voru hjólaðir í Hofsós og gekk ferðin vonum framar.
Heilmikil fagnaðarlæti brutust út þegar nemendur unglingastigs komu í bæinn en yngri nemendur skólans sáu um að vera í móttökunefnd og leystu það verkefni með miklum sóma.
Allir komu í mark sem sigurvegarar eftir mikla þrekraun, þakklátir og þreyttir eftir vel heppnaða ferð.