Allt að vinna, engu að tapa

Fimmtudaginn 17.janúar kemur Sonja Sif Jóhannsdóttir og mun hún ræða við nemendur á skólatíma en fyrirlestur fyrir foreldra verður kl. 20:00 í skólanum á Hofsósi.

Fyrirlesturinn heitir "Allt að vinna, engu að tapa" - hann fjallar um mataræði, hreyfingu og jákvæða hugsun og hún kemur líka inn á fleiri þætti sem snúa að heilbrigðum lífsstíl. Hún talar um það helsta sem ber að varst í mataræði s.s. sykur, skammtastærðir, koffíndrykki o.fl. Af hverju er hreyfing svona mikivæg? Af hverju er svefninn undirstaðan í góðri heilsu? Hvað getum við gert til að leggja inn í heilsubankann (sem er eini bankinn sem gefur góða vexti!)? Þessum spurningum ásamt fleirum mun hún svara í fyrirlestrinum.