Bleiki föstudagurinn 8.október hjá GaV

Á Bleika deginum eru landsmenn hvattir til að bera slaufuna, klæðast bleiku og lýsa skammdegið upp í bleikum ljóma svo allar konur sem greinst hafa með krabbamein finni stuðningi og samstöðu.  Þar sem að Grunnskólinn austan Vatna er í vetrarfríi 15.október þegar Bleiki dagurinn 2021 er, þá ætlum við að vera viku á undan áætlun til að taka þátt og sýna okkar stuðning.