Skólaslit - útskrift

Föstudaginn 30. maí eru skólaslit í Grunnskólanum austan Vatna kl. 14:00, athöfnin fer fram í félagsheimilinu Höfðaborg.

Leikskólinn Tröllaborg útskrifar nemendur í skólahóp og við það tilefni verða þau boðin velkomin í skóla næsta vetur.
Vinaliðar fá viðurkenningarskjöl, afhending vitnisburða og útskrift 10. bekkjar.

Að lokinni athöfn verður gestum boðið upp á veitingar.

Þökkum fyrir veturinn.