- Hagnýtar upplýsingar
- Skólastarfið
- Áherslur/Sérstaða
- Nemendur
- Gagnabanki
- Skráning í mötuneyti
- Farsæld barna
Málæði 2026
Unglingastig GAV tók þátt í verkefnavinnu á vegum Málæðis nú í haust. Lagahöfundurinn og íslenskufræðingurinn Bragi Valdimar Skúlason samdi laglínu og bauðst nemendum um allt land að semja texta við lagið. Nemendur á unglingastigi GAV unnu verkefnið í hópum og skiluðu inn textum. Verkefnið var tímafrekt og krafðist mikillar þolinmæði og þrautseigju enda reyndist snúið að láta texta passa við lagið. Lag Braga er rólegt og fallegt og umfjöllunarefni textanna sem sendir voru inn í takt við það. Textarnir fjölluðu um missi, stríð, slys og áföll. Texti Óskars Bjarna og Moniku Rutar fjallar um aldraðan mann sem misst hefur eiginkonu sína, heillaði dómnefnd og var valinn áfram. Nú hefur Bragi Valdimar fullklárað textann og Salka Sól sungið lagið í stúdíó. Við erum ótrúlega stolt af nemendum okkar og hlökkum mikið til að heyra lokaútkomuna á laginu í þættinum Málæði sem verður sýndur á RÚV á degi íslenskrar tungu þann 16. nóvember. Við hvetjum auðvitað alla til að horfa á þáttinn.
Innilega til hamingju Óskar Bjarni og Monika Rut með fallegan texta.
Stjarnan mín skær
Stjarnan mín skær,
ástin mín kær,
ég finn þig enn í hverri stund.
Hjartslættinum,
morgunbollanum,
— og gönguferðunum.
Miðnæturstjarna sem skín.
Saknar þú mín eins og ég sakna þín?
Ég kannast ekki við mig þegar þú ert ekki hér.
(Ég) kann bara'að vera með þér.
Vertu hjá mér.
Dreg andann djúpt,
man brosið þitt svo ljúft.
Ég minnist alls sem þú gafst mér.
Á síðkvöldum
(með) löngum samtölum,
og öllum góðu stundunum.
Miðnæturstjarna sem skín.
Saknar þú mín eins og ég sakna þín?
Ég kannast ekki við mig þegar þú ert ekki hér.
(Ég) kann bara'að vera með þér.
Vertu hjá mér.
Höfundar: Óskar Bjarni og Monika Rut.