Nemendur á miðstigi í Grunnskólanum austan Vatna stóðu sig frábærlega í Nýsköpunarkeppni grunnskólanna í ár. Alls bárust 502 verkefni í keppnina og komust 25 áfram í úrslit – þar á meðal tvö verkefni frá skólanum.
Sérstaklega er ástæða til að fagna árangri þeirra Trausta Viðars Fjólmundssonar í 7. bekk og Jóns Greips Þorgilssonar í 6. bekk, sem hlutu Tæknibikar NKG fyrir verkefnið sitt Léttingarkefli. Hugmyndin er sniðug lausn fyrir bændur – kefli með rótor sem auðveldar að taka niður girðingar með minni fyrirhöfn.
Hitt verkefnið sem komst áfram heitir SMR – Hjólahjálmur og er eftir þær Myrru Rós Hjörvarsdóttur og Sölku Marín Helgadóttur. Þær hönnuðu hjálm með bluetooth og aðlögun fyrir hár sem gerir hann bæði þægilegri og hentugri í notkun. Þótt það hafi ekki náð verðlaunasæti er það flottur árangur að vera í hópi 25 bestu verkefna landsins.
Nýsköpunarkeppni grunnskólanna er hugmyndasamkeppni fyrir nemendur í 5.–7. bekk þar sem lögð er áhersla á að þróa hugmyndir og efla sköpunarkraft og frumkvæði nemenda.
Við erum einstaklega stolt af þessum skapandi og duglegu nemendum – innilega til hamingju með árangurinn.