Hlaupagleði í Ólympíuhlaupi ÍSÍ
23.09.2026
Í morgun, miðvikudaginn 23. september 2026 tóku nemendur í Grunnskólanum Austan Vatna þátt í Ólympíuhlaupi ÍSÍ. Hið fínasta hlaupaveður var á svæðinu, mildur sunnanvindur en fínustu aðstæður. Nemendur gátu valið um að fara 2.5km, 5km, 7.5km og 10km.
Ólympíuhlaupið er skemmtileg hefð sem hefur myndast í skólastarfi þar sem skólar víðsvegar um landið taka þátt. 43 nemendur tóku þátt í dag og heildarvegalengd nemenda var 232.5km. Margir stigu vel út fyrir þægindaramman og fóru alla 10 kílómetrana.
Nemendur skelltu sér svo í sundlaugina að hlaupi loknu og böðuðu sig þar eftir glæsta frammistöðu í hlaupinu.