Leikhópurinn Lotta heimsótti í gær nemendur grunnskólans og leikskólans og gladdi þá með líflegri söngsyrpu í Höfðaborg. Sýningin var sérstaklega ætluð elstu nemendum leikskólans og 1.–4. bekk, en jafnframt fengu eldri nemendur sem höfðu áhuga tækifæri til að kíkja á sýninguna.
Vel var mætt og nutu nemendur sýningarinnar, enda bauð Leikhópurinn Lotta upp á skemmtilega og grípandi dagskrá sem höfðaði til breiðs aldurshóps.
Sýningin var í boði Sveitarfélagsins Skagafjarðar í tilefni af Sæluviku, sem haldin er ár hvert með fjölbreyttum viðburðum fyrir íbúa svæðisins. Heimsóknin þótti afar vel heppnuð og skilaði mikilli gleði meðal nemenda og starfsfólks skólans.
Takk fyrir komuna :)