Miðstigið með tvö verkefni áfram í Nýsköpunarkeppni grunnskólanna!
Það er heldur betur ástæða til að vera stolt af miðstiginu þessa dagana því tvö verkefni frá nemendum í Grunnskólanum austan Vatna komust áfram í Nýsköpunarkeppni grunnskólanna!
Alls voru 502 verkefni send inn alls staðar af landinu en aðeins 25 verkefni valin áfram – og þar á meðal voru okkar krakkar með tvær frábærar hugmyndir.
Verkefnið Léttingar kefli er eftir þá Trausta Viðar Fjólmundsson og Jón Greip Þorgilsson. Hugmyndin þeirra er mótor-knúið kefli sem auðveldar upptöku girðinga.
Hitt verkefnið heitir SMR – Hjólahjálmur og er eftir þær Myrru Rós Hjörvarsdóttur og Sölku Marín Helgadóttur. Þær hönnuðu hjálm með bluetooth og aðlögun fyrir hár.
Það sem gerir verkefnin extra skemmtileg er að nemendur voru að vinna með raunveruleg vandamál og finna sniðugar lausnir á þeim. Hugmyndaflugið, sköpunargleðin og dugnaðurinn skiluðu svo sannarlega árangri!
Við óskum þeim innilega til hamingju og hlökkum til að fylgjast áfram með þeim í keppninni!