Nýtt nemendaráð á unglingastigi

Nemendaráð skólaárið 2026-27
Nemendaráð skólaárið 2026-27


Nemendaráð hefur það hlutverk að gæta hagsmuna allra nemenda en ásamt því reglubundna hlutverki hefur ráðið einnig aflað fjár fyrir skólaferðalag nemenda og stýrt viðburðum fyrir yngsta- og miðstig.

Það er gaman að segja frá því að það þykir eftirsótt að eiga sæti í ráðinu og krakkarnir eru óhræddir við að axla ábyrgð. Margir buðu sig fram í ólík hlutverk og gleðst starfsfólk yfir því að sjá hvað nemendur eru metnaðarfullir.

Nemendur sýndu mikla takta og framboðsræður voru oft á tíðum mjög frumlegar, skreyttar bæði með tónlist og slagorðum - sem sagt alvöru kosningabarátta og oft var mjótt á munum.

Nýtt nemendaráð 2026-2027 er eftirfarandi:
Formaður: Valþór Máni
Ritari: Óskar Bjarni
Gjaldkeri: Ingimar
Tónlistarstjóri: Þorvaldur
Sjoppustjóri: Hákon
Skemmtanastjórar: Monika Rut og Freyja Ösp