Skemmtileg vika að baki - nýsköpun, dans og gleði

Í vikunni hafa nemendur unnið að nýsköpun og fengu danskennslu frá Ingunni Hallgrímsdóttur.
Allir nemendur skólans voru saman á starfsstöð Hofsóss.

Unglingastigið vann með þemað Nýsköpun og nærsamfélagið, þau veltu því fyrir sér hvernig hægt er að efla heimabyggðina og skólann. Þau fengu heimsóknir frá Lindu Fanneyju Valgeirsdóttir frá ALOR þar sem hún fræddi nemendur um nýsköpun og frumkvöðlastarfsemi í orkugeiranum. Magnús Barðdal frá SSNV fyrir hönd Norðanáttar fræddi þau um mikilvægi nýsköpunar, frumkvöðlastarfsemi og markaðssetningar er kemur að atvinnusköpun á landsbyggðinni. 
Á þriðjudag sóttu þau Vesturfarasetrið heim þar sem þau skoðuðu sýninguna og fengu innblástur frá Valgeiri um hvernig ótrúlegustu hugmyndir geta orðið að veruleika. Að auki voru þær Helga og Solla heimsóttar í endurnýtingarmiðstöðina Verðandi, nemendur fengu að taka til hendinni, bæði við saumaskap og smíðar.

Nemendur miðstigs og yngsta stigs unnu nýsköpunarverkefnin sín einstaklingslega eða í pörum, þau lærðu ferla nýsköpunar og líkanagerð. Í lok vikunnar var dans- og nýsköpunarsýning, þar gátu gestir séð afrakstur nýsköpunarvinnunar.

Hér koma myndir frá dans- og nýsköpunarsýningunni:

dans

dans

dans

dans

dans

dans

dans

dans

dans

dans

dans

dans

dans

dans

dans

dans

dans

  

alor

Linda Fanney Valgeirsdóttir frá Alor með unglingunum

vest

verðandi

verðandi

verðandi