Við í Grunnskólanum austan Vatna skelltum okkur í Tindastól á skíði í dag.
Ferðin heppnaðist með eindæmum vel, aðstæður fyrir skíðaiðkun voru góðar sem og veðrið var okkur í hag. Sú gula lét sjá sig meira að segja.
Allir nemendur skólans skelltu sér á skíði eða snjóbretti og það sáust margir litlir sigrar. Í skálanum fengum við heitt kakó, samlokur og annað kruðerí. Þegar ferðinni lauk voru allir þreyttir en svo sannarlega sælir.
Góða helgi.