Skólasetning GaV

Grunnskólinn austan vatna verður settur miðvikudag 22. ágúst. Skólasetningar verða sem hér segir:

Grunnskólanum að Hólum kl. 10:00 
Grunnskólanum á Hofsósi kl. 13:00

Skólastjóri setur skólann á báðum stöðum og fer yfir breytingar í stjórnun skólans og almennar upplýsingar um skólahald komandi skólaárs. Að því loknu fara nemendur í stofur ásamt sínum umsjónarkennara og fá afhentar stundatöflur. Foreldrar eru eindregið hvattir til að mæta með nemendum á skólasetningu. Skólabílar verða til taks á skólasetningu en foreldrar eru vinsamlegast beðnir að láta skólabílstjóra vita ef nemendur nýta ekki skólabíl.

Gert er ráð fyrir um klukkustunda dagskrá á Hólum og Hofsósi en skólastarf hefst svo samkvæmt stundaskrá fimmtudag 23. ágúst.