Skólaárið 2026–2027 verður sett í Grunnskólanum austan Vatna þriðjudaginn 25. ágúst kl. 13:00.
Skólastjóri mun setja skólann og fara yfir helstu breytingar, áskoranir og áherslur komandi skólaárs.
Að því loknu fara nemendur með umsjónarkennurum sínum í sínar stofur og er foreldrum og forsjáraðilum velkomið að fylgja þeim þangað.
Gert er ráð fyrir að dagskráin taki um eina klukkustund.
Við hlökkum til að hefja nýtt og spennandi skólaár saman!