Skólaslit föstudaginn 29. maí kl. 10:30

Föstudaginn 29. maí fara fram skólaslit Grunnskólans austan Vatna kl. 10:30 í félagsheimilinu Höfðaborg.

Leikskólinn Tröllaborg útskrifar nemendur í skólahóp og af því tilefni verða þau boðin velkomin í skólann næsta vetur. Nemendur fá afhentan vitnisburð sinn og einnig verða tónlistaratriði frá Tónlistarskóla Skagafjarðar. Dagskránni lýkur með útskrift 10. bekkjar.

Að athöfn lokinni verður nemendum og þeirra gestum boðið upp á veitingar.

Takk fyrir veturinn.