Vika einmanaleikans 5-9. október

 
Vika einmanaleikans er vitundarvakning Kvenfélagasambands Íslands gegn einsemd og einmanaleika. Verkefninu er ætlað að opna á umræðu um einmanaleika í samfélaginu, upplýsa almenning um orsakir og afleiðingar, hvetja til aðgerða og efla samtakamátt í þjóðfélaginu gegn einmanaleika. Vika einmanaleikans 2026 verður 2.- 9. október.
 
Stuðfrímínútur er framlag unglingastigs í baráttunni en Freyja og Monika ætla að halda utan um skemmtun fyrir nemendur í frímínútunum milli 11:10-11:25 alla dagana í vikunni. 
 

Mánudagur: Gulrótaleikurinn
Þriðjudagur: Dans og DJ Valdi Kaldi
Mið: Limbó
Fim: Froskur og fluga
Fös: Ásadans