Vika íslenskunnar - Málæði, íslenska og dans!

Það verður líf og fjör í GaV í næstu viku þegar við höldum upp á Dag íslenskrar tungu og fléttum saman Viku íslenskunnar og dansviku með Ingunni danskennara. Nemendur fást við fjölbreytt og skapandi verkefni tengd íslenskri tungu og stíga jafnframt dansspor í Höfðaborg.

Opið hús – verið hjartanlega velkomin!

Fimmtudaginn 19. nóvember kl. 14:00–15:25 bjóðum við foreldrum, forsjáraðilum og öðrum velunnurum í heimsókn til að njóta dagsins með okkur.

Dagskráin hefst á sal kl. 14:00 með söng, upplestri og fjölbreyttum atriðum nemenda. Að henni lokinni verður boðið upp á þjóðlegar veitingar sem nemendur útbúa í heimilisfræði. Kennslustofur verða einnig opnar gestum, þar sem nemendur sýna verkefni sín og bjóða upp á þrautir og leiki tengda íslenskri tungu.

Við hlökkum til að taka á móti ykkur og eiga saman notalega stund þar sem sköpun og gleði nemenda fá að njóta sín.

Málæði – „Stjarnan mín skær“

Við höfum líka sérstaka ástæðu til að hlakka til sunnudagskvöldsins 15. nóvember. Þá verður texti Moniku Rutar og Óskars Bjarna, „Stjarnan mín skær“, frumfluttur í Málæði við lag Braga Valdimars Skúlasonar og í flutningi Sölku Sólar. Við hvetjum alla til að fylgjast með og gleðjast með okkur yfir þessum glæsilega árangri.

Við erum afar stolt af nemendum okkar og hlökkum til viku þar sem íslensk tunga, sköpun og dans verða í fyrirrúmi.

Fylgjumst með Málæði á sunnudaginn og hittumst á opnu húsi á fimmtudaginn. Allir hjartanlega velkomnir!